|
|
Þú myndir ekki skilja útidyrahurðina eftir upp á gátt þegar þú ferð út. Það sama á við um tækin sem þú notar. Þú ættir alltaf að læsa skjánum þegar þú hefur lokið við að nota tölvuna þína, fartölvuna eða símann. Til að auka enn á öryggið ættirðu líka að stilla tækið þitt þannig að það læsist sjálfkrafa þegar það fer í hvíldarstillingu. Þetta er sérlega mikilvægt fyrir síma og spjaldtölvur sem líklegra er að fari á flakk og lendi hjá fólki sem þú vilt ekki að hafi aðgang að upplýsingunum þínum, en einnig tölvur sem eru á samnýttum svæðum.
|