des missiles – Icelandic Translation – Keybot Dictionary

Spacer TTN Translation Network TTN TTN Login Deutsch Français Spacer Help
Source Languages Target Languages
Keybot      35 Results   1 Domain
  35 Hits www.nato.int  
La fin du long séjour de Luns à l'OTAN fut marquée par la saga des euro-missiles. En 1979, l'Alliance décide de déployer des missiles Cruise et Pershing en Europe, face aux SS20 soviétiques. La décision suscite d'importantes manifestations de rue de la part des pacifistes des deux côtés de l'Atlantique.
Síðustu árin sem Luns starfaði hjá NATO var umræðan um eldflaugar í Evrópu efst á baugi. Bandalagið ákvað árið 1979 að setja upp stýriflaugar og Pershing-flaugar í Evrópu sem svar við SS20-flaugum Sovétmanna. Sú ákvörðun leiddi til gífurlegra götumótmæla friðarhreyfinga beggja vegna Atlantshafs. Ýmsar ríkisstjórnir, einkum í Hollandi og Þýskalandi, urðu fyrir miklum þrýstingi heima fyrir. Luns hafði það erfiða starf með höndum að vinna uppsetningu flauganna fylgi, jafnframt því að sannfæra almenning um að NATO sæktist af einlægni eftir "núll-núll" lausn með viðræðum um takmörkun vígbúnaðar. Naut hann við það dyggrar aðstoðar stjórnskörunga á borð við François Mitterrand í Frakklandi og Helmut Schmidt og Helmut Kohl í Þýskalandi. Þegar Luns lét af störfum árið 1984 hafði fyrstu stýriflaugunum og Pershing-flaugunum verið komið upp. Enn liðu þrjú ár þar til viðræður um takmörkun vígbúnaðar leiddu til þess að þær voru fjarlægðar.