|
|
Gmail verndar þig gegn ruslpósti og skaðlegum skeytum. Gmail meðhöndlar milljarða skeyta á hverjum degi og þegar kemur að því að vernda notendur gegn ruslpósti er árangurinn framúrskarandi – minna en 1% af öllum ruslpósti í Gmail endar í pósthólfi einhvers. Þegar ný tegund af ruslpósti er send greinir kerfið okkar það oft innan nokkurra mínútna og útilokar að það komist til Google reikninga. Þetta dregur úr líkum á að þeim sem senda ruslpóst með það að markmiði að skaða tölvuna þína eða stela persónuupplýsingum verði kápan úr því klæðinu.
|