|
|
Flestar ríkisstjórnir viðurkenna helstu kennisetningar vísindanna og megin niðurstöðuna – að losun af mannavöldum sé meginorsök hlýnunar undanfarinna ára. Og nánast án undantekninga, krefjast þau þess að gripið verði til bráðaaðgerða. En ágreiningurinn í Kaupmannahöfn leiddi í ljós til hversu takmarkaðra ráðstafana þau voru tilbúin að grípa og lítið hefur breyst síðan þá. Kína, stærsti losandi gróðurhúsalofttegunda í heimi, lítur á sig sem þróunarríki og heldur því fram að iðnvæddu ríkin ættu að vera í fararbroddi hvað varðar að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, á sama tíma og Kína neitar að undirrita alþjóðlegan sáttmála. Og Bandaríkin, annar mesti losandinn, eru einnig ósamvinnuþýð. Þrátt fyrir yfirlýst markmið Obama forseti um að taka þátt í hnattrænu átaki, voru áætlanir um innlenda löggjöf í umhverfismálum felldar í Öldungadeildinni í fyrra, sem gerir þátttöku Bandaríkjanna í alþjóðasamningum á þessu sviði mjög ólíklega í fyrirsjáanlegri framtíð.
|