|
|
Ég er einnig sammála því að mikill getumunur er á þeim ríkjum sem fremst standa í bandalaginu, svo sem annars vegar Frakklandi og Bretlandi, sem hafa verið að þróa hersveitir til að beita fjarri heimahögum og netlæga getu, og hins vegar öðrum bandalagsríkjum. Satt að segja er hætta á því ef fram fer sem horfir, að til verði þriggja deilda bandalag: (1) Bandaríkin og nokkur valin aðildarríki sem geta sent sveitir á vettvang; (2) meginhluti bandalagsins, sem situr að mestu eftir í kaldastríðsstöðunni að því er getu varðar, og (3) nýju aðildarríkin, sem búa ekki yfir jafntæknivæddum herafla og ríkin í öðrum hópnum.
|