|
|
Við erum stöðugt að vinna að því að tryggja hátt öryggisstig, vernda friðhelgi þína og gera Google enn skilvirkara og nytsamlegra fyrir þig. Við verjum hundruðum milljóna dollara á ári í öryggismál og hjá okkur starfa heimsþekktir sérfræðingar á sviði gagnaöryggis með það að markmiði að vernda upplýsingarnar þínar. Við höfum einnig þróað persónuverndar- og öryggisverkfæri sem eru auðveld í notkun, á borð við Google stjórnborðið, tvíþætta staðfestingu og stjórnun kjörstillinga fyrir auglýsingar. Þú ert því við stjórnvölinn þegar kemur að upplýsingunum sem þú deilir með Google.
|