|
|
Vefforrit, einnig þekkt sem forrit eða „öpp“, eru forrit sem búa í vafranum þínum eða fartækinu. Þau tengja þig við þjónustu á netinu og gera þér kleift að framkvæma einföld verkefni á borð við að bókamerkja vefsvæði og skoða tölvupóst. Þau geta einnig framkvæmt flóknari verkefni eins og að deila myndum, leiðbeina þér um borgina eða spila tónlist. Leiðsagnarkerfi í bíl er gott dæmi um forrit. Með því forriti færðu rauntímaupplýsingar sem miðast við staðsetningu þína. Þú getur fært kortið til og breytt aðdrættinum, fengið leiðarlýsingar, fundið aðrar leiðir og leitað að tilteknum áfangastöðum.
|