|
Þú getur skipt á milli Google reikninganna þinna fljótt og auðveldlega, hvort sem er í tölvu eða fartæki. Þú getur til dæmis bætt við aukalegum Google reikningi þegar þú ert skráð(ur) inn á aðalreikninginn þinn og skipt á milli þeirra tveggja. Og í nýrri Google spjaldtölvum sem bjóða upp á stillingar fyrir marga notendur, t.d. Nexus 7, er auðvelt að tengja marga reikninga við eitt tæki. Með þessu er einfalt fyrir fjölskyldumeðlimi að skoða tölvupóstinn sinn eða fá aðgang að sínum forritum án þess að þurfa að skrá sig inn og út. Þegar þú hefur sett upp aðalreikning er einfalt að bæta reikningum við í stillingum tækisins.
|